Færslur: 2008 Júlí31.07.2008 10:00Bátslikan úr Eyjum © mynd Tryggvi Sigurðsson Tryggvi Sigurðsson hinn kunni hagleiksmaður og vélstjóri á Frá VE sendi mér nokkar myndir nú nýverið og þar með þessa af bátslikani sem að hann hefur smiðað en hann hefur verið afkasta mikill á þeim sviðum og ber handverk hans þess glögt merki nú er spurt hvað heitir báturinn sem að hér sést Skrifað af Þorgeir 31.07.2008 00:01Myndakorn úr Grindavík Myndasyrpu sú sem birtist hér var tekin í sumar á sjómannadaginn í Grindavíkurhöfn og er kallað hér MYNDAKORN. Ljósmyndari var Emil Páll. Ekki þarf texta undir hverja mynd fyrir sig, því það sjá flestir örugglega hvað þær segja hver fyrir sig. Frá Grindavík © myndir Emil Páll 2008 Skrifað af Emil Páli 30.07.2008 15:18veðurbliða á Húsavikveðurbliða © myndir þorgeir Baldursson 2008 þegar siðuritarari var á húsavik i morgun var um 23 stiga hiti og var mikið lif og fjör við höfnina hjá hvalaskoðunnarfyrirtækjumum við að koma sinum farkostum á sjó og hérna fyrir ofan má sjá þá Ivar , Halldór , Helga ,og Nonnabegg fylgjast með þegar fleyturnar lögðu i hann ein af annari Skrifað af Þorgeir 30.07.2008 08:57Siggi Þorsteins og Haukur á leið í pottinnSiggi Þorsteins og Haukur EA við bryggju í Njarðvíkurhöfn í morgun © mynd Emil Páll 2008 Siggi Þorsteins ÍS 123 er nú við bryggju í Njarðvíkurhöfn, en þangað kom hann í gær á leið sinni til Danmerkur þar sem hann fer í pottinn fræga, þ.e. niðurrif. Til stóð báturinn yrði seldur til Afríku, en ekkert varð úr þeirri sölu og því fer hann sömu leið og allt of margir hafa farið að undanförnu þ.e. í brotajárn. Ekki fer Siggi Þorsteinn þó einn yfir hafið því hann dregur með sér Hauk EA 76, en vélin hrundi í þeim báti á síðasta ári. Vonast menn til að geta lagt í hann síðar í dag eða í kvöld. 11. Siggi Þorsteins ÍS 123 kemur til Njarðvíkur i gær © mynd Hilmar Bragi vf.is Unnið við að gera 236. Hauk EA 76 klárann fyrir ferðina yfir hafið © mynd Emil Páll 2008. Skrifað af Emil Páli 29.07.2008 23:59Þakka fyrir áskoranirnar, lofið og stuðninginn2428. Margrét HF 148 © mynd Emil Páll 2008. Þó ég komi hér með eina færslu, segir það ekkert til um framhaldið, heldur að ég vil þakka fyrir stuðninginn, áskoranirnar og allt lofið sem ég hef fengið bæði hér á síðunni og eins með öðrum hætti. En þegar mál eru komin í þennan farveg, getur oft verið erfitt að draga sig til baka. Því hef ég tekið mér frest fram yfir helgi til að ákveða með framhaldið. En fyrst ég er á annað borð farinn að skrifa færslu set ég inn tvær myndir sem ég tók nýlega, aðra tók ég í Reykjavík en hina í Hafnarfirði. Mbk. Emil Páll 1056. Arnar ÁR 55 © mynd Emil Páll 2008 Skrifað af Emil Páli 28.07.2008 23:49BloggathugasemdirAð gefnu tilefni vill siðueigandi biðja þá sem að blogga athugasemdir hérna inná siðunni að vanda mállfar sitt og vera ekki með tilsvör á þeim nótum að sært geti þá sem að koma og lesa athugasemdinar. Gerum góða siðu betri. Skrifað af Þorgeir 28.07.2008 20:39Vélarvana bátur dregin i land© Ósk KE 5 mynd VF.IS/Hilmar Bragi Bárðarsson © Ósk KE 5 Mynd VF.IS/ Hilmar Bragi Bárðarsson Netabáturinn Ósk KE 5 var dregin vélarvana til Keflavíkur í dag. Óskað var eftir aðstoð frá björgunarskipinu Hannesi Þ. Hafstein um hádegisbil en þá hafði gír bilað í Ósk KE þar sem hún var að veiðum norðarlega í Faxaflóa. Björgunarskipið var þegar mannað. Dráttartaug var komið um borð í Ósk KE og stefnan tekin á Keflavík. Þar var afla úr veiðiferðinni landað og síðan munu verkstæðismenn laga bilunina í skipinu. Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein er gert út frá Sandgerði er rekið af björgunarsveitunum Sigurvon í Sandgerði og Björgunarsveitinni Suðurnes í Reykjanesbæ. Björgunarskipið hét áður Oddur V. Gíslason og var gert út frá Grindavík. Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar björgunarskipið kom með Ósk KE til hafnar í Keflavík nú síðdegis en hafnsögubáturinn Auðunn frá Keflavík aðstoðaði við að koma Ósk KE að bryggju. Gott var í sjóinn í dag og sóttist ferðin vel hjá björgunarskipinu. Ljósmyndir: Víkurfréttir / Hilmar Bragi Bárðarson Skrifað af Þorgeir 28.07.2008 11:41Mettúr hjá Margreti EA 710
Margrét EA fékk síðastliðinn föstudag stærsta hal í flotvörpu sem vitað er um hérlendis. Hífði Margrétin upp eftir tíu tíma þrettán hundruð tonn af fiski og var 90% fisksins makríll en afgangurinn síld. Skipið var við veiðar út af Austfjörðum. Þar sem svo stór hluti aflans er makríll þykir ljóst að verðmæti aflans er mikið. Ekki er vitað um að skip hafi áður fengið svo mikið í einu hali í flotvörpu en vitað er um eitt skip, Voyager, sem fékk árið 2006 1150 tonn. Ekki er vitað hvað skip hafa mest fengið erlendis en sumir telja að afli Margrétar eigi erindi á heimsmetalistann. "Þau gerast ekki stærri en þetta" Kristinn Snæbjörnsson sem var skipstjóri Margrétar í túrnum sagði að höl gerðust ekki stærri en þetta. "Þetta kom okkur mjög á óvart og það var heppilegt að það vorum við sem fengum þetta því Margrét er eina skipið sem er nægilega vel útbúið til að geta tekið svo stórt hal." Veiðin á svæðinu var hin fínasta eftir þetta, líka hjá öðrum skipum. Nú er verið að veiða makríl sem er utan kvóta og síld kemur með. Er oft verið að fá svona 600 tonn í einu svo að munurinn á því og hali Margrétar er mikill. Margrétin var pöruð með öðru skipi eins og venjan hefur verið í sumar og hefur það gefist vel. Þriðja skipið kemur svo reglulega og ferjar afla í land. Margrétin hélt í land með fullfermi eftir að hafa verið fjóra daga í túrnum. Samtals veiddu skipin tvö 3900 tonn á þessum fjórum dögum. Heimild mbl.is
Skrifað af Þorgeir 27.07.2008 12:52Nýr Portland VE til EyjaArney HU 36 © Mynd Þorgeir Baldursson 2007
Skrifað af Þorgeir 26.07.2008 10:26Mærudagar Húsavik 2008© Mynd þorgeir Baldursson 2008 Það var mikil og góð stemming á Mærudögum á Húsavik i gærkveldi og eins og sjá má, var veðrið allveg eins og best var á kosið fleiri myndir eftir helgi i myndaalbúmi Skrifað af Þorgeir 26.07.2008 10:05Smáey VE 144© Mynd Tryggvi Sigurðsson Tryggvi Sig sendi mér þessa mynd af Smáey VE 144 og kann ég honum bestu þakkir fyrir afnotin Togbáturinn Smáey VE frá Vestmannaeyjum skilaði mestu aflaverðmæti í bátaflotanum á árinu 2007 eða 477 milljónum króna. Smáey var einnig efst í þessum flokki árið áður en þá með 451 milljón króna. Afli bátsins á árinu 2007 nam 3.076 tonnum samanborið við 3.060 tonnum árið áður. Meðalverð miðað við afla upp úr sjó var 155 krónur kílóið samanborið við 147 kr/kg árið á undan. Heimild fiskifréttir Skrifað af Þorgeir 25.07.2008 01:25Júlli Dan ÞH 364© mynd Þorgeir Baldursson 1997 233- Júlli Dan ÞH 364 á loðnuveiðum árið 1997 hver er saga hans Skrifað af Þorgeir 24.07.2008 00:17Veiðar án kvóta innan landhelgi© myndir Þorgeir Baldursson 1997 og 2008 Það er talsverður stærðarmunur á þessum tveimur skipum myndin af Þórshamri er tekin i innsiglingunni til Djúpavogs en Júlíana Guðrúnu i Sangerðishöfn og nú væri gott að heyra álit ykkar um þennan gjörning Ásmundar Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 387 Gestir í dag: 37 Flettingar í gær: 538 Gestir í gær: 59 Samtals flettingar: 997126 Samtals gestir: 48682 Tölur uppfærðar: 23.11.2024 08:58:07 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is